Jæjja komin heim
Þá erum við komin heim frá Noregi lentum um þrjú leytið.
Það eru allir sammála um að það hafi verið ótrúlega gaman þarna og við ætlum sko flest að fara aftur á næsta ári. Ég ætla núna að skrifa um þá daga sem vöntuðu uppá í færslunum á undan.
Laugardagur:
Við vöknuðum alltof snemma kepptum tvisvar með bílnum og hann datt í sundur í bæði skiptin. K&V fóru með rannsóknarverkefnið og gekk rosalega vel þótt að við hefðum fengið eitt komment um að við hefðum átt að kynna það til skiptist eða öll meira saman.
Við sýndum kynninguna á róbotnum sem gekk mjög vel og allir mjög ánægðir með hana. Fríksjóvið gekk síðan áfram allan daginn.
Um þrjú leytið fórum við heim til að gera okkur tilbúin fyrir nördapartýið og síðan haldið þangað um kl. 6.
Við gerðum ósköp lítið þar, fengum mat sem var ekki sérlega góður. Síðan fórum við nokkur úr liðinu og töluðum við mann frá Palestínu og lærðum smá um stafina þeira o.fl.
Síðan fórum við uppá hótel og ég,Kristín,Eyjó,Valgerður,Harpa og Andri fórum á Pizza kjallarann og skemmtum okkur konunglega. Þau á matsölustaðnum gerðu þau stóru mistök að gefa okkur miðlung pizzzur í staðin fyrir littlar en það var fínt.
Sunnudagur (í gær)
Aftur vöknuðum við klukkan 6 um morguninn gaman gaman. Fórum síðan með businum uppí keppnishúsið. Stuttu eftir að við komun vorum við með liðsheildarkynningu sem gekk bara mjög vel.
Síðan var bílakeppni og aftur klikkaði bíllin og við dottin úr kepni. Uppgvötuðum síðan að við lentum á milli 50-54 sæti.
En við vorum áfram hress og úrslitakeppnin var og svaka stemning. Þá vann lið frá Kóreu fyrir flestu bílastigin og svo lið frá Tyrklandi sem urðu Evrópumeistarar. Þess má geta að Eyjó hefur haft einhver sambönd við Evrópumeistarana fyrir keppnina!
Þegar líða fór á keppnina spurðum við vinaliðin okkar Jamaika og Edisons hvort þau vildu ekki joina okkur í kvöldmat. Japanarnir voru eitthvað að uppteknir og komust ekki en þýskararnir eins og við kölluðum þá komust.
Síðan leið að kvöldverði Halli settist náttúrulega við hlið vinar síns Fabians og voru þeir voða hressir. Við stelpurnar sátum svo fjórar saman við hlið tveggja þjóðverja. Við spjölluðum við þá, ég reyndi að kenna þeim að blóta á íslensku þar sem ég kann það á þýsku en það gekk ekki alveg nógu vel. Síðan skemmtum við okkur við það að láta þá segja nöfnin okkar, greyin eiga eitthvað erfitt með að segja err svo þetta var mjög gaman. Við skiptumst á E-mailum og síðan bauð allt Þjóðverjaliðið okkur stelpunum í biljard. Við vorum alveg hressar með það og fórum eftir matin. Við byrjuðum í biljard og aumingja þeir sem voru með eitthverri okkar í liði grúttopuðui. Við ákváðum þá að þetta væri bara leiðinlegur leikur og báðum um að fara í þythokkí. Þeir tóku það síðan náttúrulega ekki í mál að við skyldum borga.
Við fórum í þythokkí og burstuðum þá í því en þurftum síðan því miður að fara upp að pakka þegar klukkan var orðin 11.
Þá tóku strákarnir við og fóru með Þjóðverjunum eitthvað út og við vitum ekki meirum þá ferð.
Í dag
Við fengum að sofa út alveg til kortér yfir sjö og fengum síðan frábæran hótelismorgunmat. Fórum síðan með svartri rútu uppá flugvöll og héldum að stað heim.
Ég nenni eiginlega ekki að lýsa heimferðinni í smáatriðum en Harpa ætlaði allavega að hlaupa útúr flugvélinni. Og þannig endaði þetta ævintýri okkar!
Er farin að læra fyrir próf
Kv. Ýr ![]()
Nýjustu fréttir frá Valgerði
Núna rétt áðan voru Jón Ha? og Atli að fara með bílinn í gegnum síðara rennslið.
Allt liðið fylgdist með og hvatti þá af ákafa, ég fékk meira að segja að garga í míkrafón svo heyrðist út um allan salinn!
Nú eigum við bara eftir að heyra lokatölurnar hjá bílnum og fara í nördapartý í kvöld. Það verður sko stuð.
Nú hvet ég alla til að kíkja á linkinn hér fyrir neðan því þar getið þið fylgst með keppninni í beinni. Sjáumst
http://www.flloec.org/index.php?option=com_content&task=view&id=9&Itemid=18
Kær kveðja Valgerður
Veiii
Blöh!
Góðan morgun
Við erum núna uppí legókubbakeppnishúsi og það er alveg svaka stemming og klukkan alveg að verða átta. Við þurftum reyndar að vakna klukkan 6 í morgun(4 á Íslenskum tíma) þannig auðvitað eru allir í bana stuði. ![]()
Í gær áttum við að koma okkur fyrir. Við byrjuðum í rólegheitum að hengja upp plaggöt, panta prufutíma fyrir rannsókn og bíl og litum síðan á aðra bása.
Þetta er tekið mjög alvarlega hjá hinum liðunum allir litlu Kóreubúarnir eru búnir að læra runur á ensku sem þeir nota til að kynna landið. Síðan er einnig hver og einn bás með sínar smjaðurgjafir og þegar maður gekk útúr húsinu í gær leit maður út eins og eitthver bling bling töffari allur útí nælum. Við náttúrulega með pínu samviskubit og vorum að hugsa um að kaupa nammi til að hafa á básnum okkar en það verður held ég ekkert úr því. Það er ekki eins og þessi keppni snúist bara um gjafir.
Mér datt nú reyndar í hug að við myndum syngja eitthver falleg íslensk lög fyrir gesti og gangandi en liðsmenn eru mis hressir.
Í gærkveldi vorum við pínd uppá hæsta hólinn í Bodö í þeirri von um að fá mat. Jú við drösluðum okkur upp og fengum teppi og það var voða kósý og kalt uppá fjallinu. Síðan kom loksins maturinn og svaka röð fylgdi með ég þurfti reyndar ekki að fara í neina röð til að bíða eftir þessari hermannakássu þar sem hún kom gangandi til mín
Þar sem hún kom gangandi var enginn skeið með svo að ég byrjaði bara að borða hana með höndunum. En síðan reddaðist skeið fyrir mig og ég þurfti enn ekki að hreyfa mig.
Sumir lentu samt í því að fá engan mat en þeir höfðu hvort eð er ekkert gott af honum. Harpa og Valgerður fengu að far með hjúkkunni niður en við gengum aftur til baka. Þegar niður var komið voru engar rútur og við biðum í kuldanum heil lengi en Halli hafði nú sinn góða félagskap Fabian(hugsanlega vitlaust skrifað) sem að er besti vinur hans núna.
Þegar að við komum síðan heim fórum við á Burger King þar sem hermannakássan var ekki alveg fyrir alla.
Valgerður greyið er að verða brjáluð á öllum litlu krökkunum sem hlaupa hérna um veifandi fánum eins brjálæðingar.
Kristín er að verða brjáluð á "tónlistinni"
Ég er að verða brjáluð á Jón Ha? og bílnum sem eru alltaf að trufla mig og tölvuna.
Eyjó er brjálaður á Norsurum sem mættu ekki að ganga í gær og fá að sofa út.
Siggi er að verða brjálaður á nöldrinu í öllum
Eitthvað merkilegt:
Nördaballið í kveld allir hressir með það.
Við þurfum að vakna á sama tíma á morgun.
Við fórum að versla í gær ágætis H&M búð hérna í Bodö
Litlu krakkarnir með fánana eru komnir með flautur og trommur ég er farin!
-Ýr
We are in Norway
The last write before we go!
That is my honour to write the last diary write before we go to Norway.
We have to wake up very very early (about 4 a.m)
See you tomorrow aliens.
-Ýr
We are going tomorrow
The guys were testing Grumpy and he achieved the total of 360 points and did it on 2 minutes and 17 seconds.
Valgerður and Kristín are showing the research project to lot of people. And we were setting some sponsors logos on the homepages. We are thinking about how we will pack the car for the flight.
So see you tomorrow outlanders
Only five days
There are just five days!
Margt smátt is going to give us some high school shirts.
Looking forward to see you all in Bodö!
Hi
I saw that Ýr had written 2 blogs. Very nice ones! But anyway i was searching on the internet and found few pictures from the competition in Iceland.






Well that's it
See you later
-Kristín
Just a week
I just figured it out that we don’t need the act. We have been making a video with Lego people and now I was reading the plan but there is no plan about showing the acts.
We have been making this video for more than two months and just finish it to day. That is little ironical.![]()
On the Icelandic competition we need to have a diary and an act but we don’t need it in Norway.
But we are still happy
We are going after just one week!
-Ýr ![]()